Axel enn á meðal efstu manna

Axel Bóasson
Axel Bóasson Ljósmynd/GSÍ

Atvinnukylfingurinn Axel Bóasson er enn á meðal efstu manna eftir 2. hring á SGT Tourf­inal mót­inu sem er loka­mótið Nordic Golf mót­araðar­inn­ar og fram fer í Árós­um í Dan­mörku. Hann lék á 71 höggi í dag eða einu höggi yfir pari. Axel er samtals á fjórum höggum yfir pari og í 4. sæti ásamt fleiri kylfingum. 

Haraldur Franklín Magnús náði sér hins vegar ekki á strik í dag, lék á 76 höggum eða sex höggum yfir pari. Hann er samtals á átta höggum yfir pari og í 15.-19 sæti af 30 kylfingum. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert