Birgir Leifur á einu undir

Birgir Leifur Hafþórsson
Birgir Leifur Hafþórsson

Birgir Leifur Hafþórsson, atvinnukylfingur í golfi, lék á einu höggi undir pari, 71 höggi, á þriðja hring sínum á Hain­an Open-mót­inu í Kína en mótið er hluti af Áskorendamótaröðö Evrópu. Samtals er Birgir á níu höggum undir pari á mótinu eftir þrjá hringi af fjórum.

Birgir Leifur er í 12.-14. sæti á mótinu fyrir lokahringinn á morgun. Birgir lék einnig á 71 höggi á 1. hringnum á fimmtudag en lék á mögnuðum 65 höggum í gær.

Erik van Rooyen frá Suður-Afríku er í sérflokki á mótinu og er á -17. Finninn Tapio Pulkkanen er í 2. sæti á -15 og Skotinn Grant Forrest í 3. sæti á -13.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert