Skrautlegur hringur Ólafíu

Ólafía Þórunn Kristinsdóttir.
Ólafía Þórunn Kristinsdóttir. AFP

Atvinnukylfingurinn Ólafía Þórunn Kristinsdóttir átti skrautlegan þriðja hring á Keb Hana Bank mót­inu í Suður-Kór­eu á LPGA-mótaröðinni í golfi en hún lék á 75 höggum í dag, þremur yfir pari.

Ólafía Þórunn fékk fimm fugla, fjóra skolla og tvo tvöfalda skolla og fékk því aðeins sjö pör á holunum 18.

Ólafía hefur ekki náð sér á strik á mótinu en hún er á samtals 12 höggum yfir pari og er með neðstu konum.

Ólafía hefur aftur á móti spilað frábærlega á tímabilinu og er 82. sæti á styrkleikalista mótaraðarinnar, í 70. sæti á peningalista mótaraðarinnar, og í góðum möguleika að tryggja sér fullan keppnisrétt á mótaröðinni á næsta tímabili.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert