Ólafía á tveimur yfir á lokahringnum

Ólafía Þórunn Kristinsdóttir.
Ólafía Þórunn Kristinsdóttir. AFP

Ólafía Þórunn Kristinsdóttir endaði í 76. sæti á Keb Hana Bank mót­inu í Suður-Kór­eu á LPGA-mótaröðinni í golfi.

Ólafía lék á 74 höggum í dag sem var hennar besti hringur, á tveimur höggum yfir pari. Hún fékk tvo fugla, tvo skolla og einn skramba í dag. Samtals var Ólafía á 14 höggum yfir pari á mótinu.

Ólafía er í 82. sæti á styrkleikalista mótaraðarinnar en efstu 100 kylfingarnir fá fullan keppnisrétt á næsta tímabili.

Næsta mót hjá Ólafíu verður í Taívan þann 19. október og verður það 23. mótið hjá Ólafíu á keppnistímabilinu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert