Ólafía aftur á fimm yfir pari

Ólafía Þórunn Kristinsdóttir.
Ólafía Þórunn Kristinsdóttir. AFP

Atvinnukylfingurinn Ólafía Þórunn Kristinsdóttir lék á 77 höggum á þriðja hring sínum á Taív­an-meist­ara­mót­inu í golfi sem er hluti af LPGA mótaröðinni.

Ólafía lék á fimm höggum yfir pari í dag líkt og í gær, fékk einn fugl, fjóra skolla og einn tvölfaldan skolla.

Ólafía er í 74. sæti á mótinu og leikur sinn síðasta hring í nótt.

Verði þetta hennar lokastaða á mótinu er áætlað m.v. stöðu annarra kylfinga á mótinu í dag að hún haldi sér í 82. sæti á styrkleikalistanum eftir mótið. Efstu 100 kylfingar LPGA-mótaraðarinnar fá fullan keppnisrétt á mótaröð næsta árs.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert