Valdís keppir á Spáni og í Abu Dhabi

Valdís Þóra Jónsdóttir.
Valdís Þóra Jónsdóttir. mbl.is/Golli

Atvinnukylfingurinn Valdís Þóra Jónsdóttir úr golfklúbbnum Leyni á Akranesi hefur keppni á Santander Golf Tour á Spáni á miðvikudaginn en mótið er í LET Acess mótaröðinni, þeirri næst sterkustu í Evrópu.

Leiknar verða 54 holur á mótinu á þremur dögum og eftir mótið á Spáni heldur Valdís til Abu Dhabi í Sameinuðu arabísku furstadæmunum og tekur þar mátt í LET Evrópumótaröðinni dagana 1.-4. nóvember.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert