Frábær byrjun hjá Valdísi Þóru

Valdís Þóra Jónsdóttir.
Valdís Þóra Jónsdóttir. mbl.is/Golli

Atvinnukylfingurinn Valdís Þóra Jónsdóttir byrjaði frábærlega á Sanya-mótinu á LET-Evrópumótaröðinni í golfi sem fram fer í á kínversku eyjunni Hainan í Suður-Kínahafi  en mótið er það næstsíðasta á tímabilinu.

Valdís Þóra lék fyrsta hringinn á 68 höggum eða fjórum höggum undir pari og er í 3. sæti ásamt átta öðrum kylfingum. Skagakonan fékk alls fimm fugla á hringnum og einn skolla en spilaðir verða þrír hringir á mótinu og er niðurskurður eftir tvo.

Staðan á mótinu:

Valdís er í 113. sæti á stigalista LET-Evrópumótaraðarinnar en hún þarf að vera í hópi 80 efstu í lok tímabilsins til þess að tryggja sér keppnisréttinn á næsta tímabili.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert