Íslandsmeistarar Vals gerðu sér lítið fyrir og lögðu slóvenska stórliðið Celje Lasko, 29:28, í riðlakeppni Meistaradeildar karla í handbolta en liðin áttust við í Vodafone höllinni. Pálmar Pétursson var hetja Valsmanna. Hann varði vítaskot á lokamínútunni og skot af línunni þegar 10 sekúndur voru til leiksloka.
,,Þetta er lyginni líkast. Þetta er eitt af stærstu liðinum í Evrópu sem vorum vorum að leggja og ég trúi þessu vart ennþá. Þetta er stórsigur fyrir íslenska handbolta," sagði Óskar Bjarni Óskarsson þjálfari Vals í viðtali við sjónvarpsstöðina Sýn eftir leikinn.