Alfreð kallar saman tvö lið fyrir EM

Alfreð Gíslason, landsliðsþjálfari í handknattleik, hefur valið um 40 manns …
Alfreð Gíslason, landsliðsþjálfari í handknattleik, hefur valið um 40 manns til að taka þátt í EM undirbúningi. Sverrir Vilhelmsson

Alfreð Gíslason, landsliðsþjálfari í handknattleik karla, hefur valið tvo stóra hópa leikmanna til undirbúnings fyrir Evrópumeistaramótið í handknattleik sem fram fer í Noregi 17. - 27. janúar á næsta ári. Annar hópurinn tekur þátt í móti í Danmörku í byrjun ársins og síðan tveimur leikjum við Tékka hér heima 13. og 14. janúar en hinn, B-landslið, leikur á móti í Noregi 11., 12. og 13. janúar.

Lið eitt kemur saman í Danmörku 3. janúar og tekur þátt í móti þar sem leikið verður við Dani, Norðmenn og Pólverja 4., 5. og 6. janúar. Eins leikur það hér heima 13. og 14. janúar við Tékka.

Markverðir
Birkir Ívar Guðmundsson,  N-Lübbecke
Roland Eradze, Stjörnunni
Hreiðar Guðmundsson,  Sävehof

Aðrir leikmenn: 
Guðjón Valur Sigurðsson, Gummersbach
Alexander Petersson,  Flensburg
Róbert Gunnarsson,   Gummersbach
Vignir Svavarsson,   Skjern
Jaliesky Garcia,   Göppingen
Arnór Atlason,   FCK Köbenhavn
Snorri Steinn Guðjónsson,  GOG Gudme
Ólafur Stefánsson,   Ciudad Real
Einar Hólmgeirsson,  Flensburg
Ásgeir Örn. Hallgrímsson,  GOG Gudme
Logi Geirsson,   Lemgo
Sverre Jakobsson,   Gummersbach
Sigfús Sigurðsson,   Ademar León
Bjarni Fritzson,   St Raphael
Hannes Jón Jónsson,  Fredericia

Landsliðshópur 2 sem tekur þátt í Posten Cup í Noregi, 11., 12. og 13. janúar. Þar verður leikið við Ungverja, Portúgala og Norðmenn. Æfingar hefjast 4. janúar undir stjórn Arons Kristjánssonar og Kristjáns Halldórssonar, þjálfara Hauka og Stjörnunnar.

Markverðir:  
Björgvin Páll Gústavsson.  Fram
Davíð Svansson, Aftureldingu
Ólafur Gíslason,   Val

Aðrir leikmenn: 
Sturla Ásgeirsson,  Århus GF
Baldvin Þorsteinsson,  Valur
Andri Stefan Guðrúnarson,   Haukum
Heimir Örn Árnason,   Stjörnunni
Jóhann Gunnar Einarsson,  Fram
Arnór Þór Gunnarsson,  Val
Fannar Þorbjörnsson,  Fredericia
Kári Kristjánsson,   Haukum
Gunnar Berg Viktorsson,  Haukum
Einar Ingi Hrafnsson,  Fram
Ernir Hrafn Arnarson,   Val
Elvar Friðriksson,   Val
Árni Þór Sigtryggsson,  Granollers
Ólafur Bjarki Ragnarsson,  HK
Gísli Kristjánsson,   Fredericia
Rúnar Kárason,   Fram
Guðlaugur Arnarsson,  Malmö
Gunnar Ingi Jóhannsson,  Stjörnunni
Ingimundur Ingimundarson, Elverum
 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert