Alfreð: Frábær fyrri hálfleikur

Alfreð Gíslason.
Alfreð Gíslason. Þorvaldur Örn Kristmundsson

„Ég er mjög ánægður með fyrri hálfleikinn þar sem vörnin var frábær og markvarslan hjá Hreiðari Guðmundssyni var eins sú besta sem sést hefur frá íslenskum markvarði í mörg á. Með seinni hálfleikinn er ég óánægður með, þá misstu menn alla einbeitingu," sagði Alfreð Gíslason, landsliðsþjálfari í handknattleik, eftir sigurinn á Slóvökum, 28:22, í riðlakeppni Evrópumótsins í Þrándheimi nú í kvöld.


Með sigrinum er íslenska landsliðið komið með annan fótinn í milliriðlakeppni Evrópumótsins.

„Í upphafi síðari hálfleiks þá misstum við einbeitinguna og þá opnaðist leikurinn og Slóvakar komust á bragðið og sýndu að þeir eru með gott lið sem gefst aldrei upp. En fyrst og fremst er ég ánægður með sigurinn en það var slæmt hvað við duttum niður í síðari hálfleik, það var óviðundnadi og eitthvað sem við verðum að bæta fyrir næsta leik,“ sagði Alfreð Gíslason, landsliðsþjálfari.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert