Víkingar í efstu deild eftir sigur gegn ÍR

Stuðningsmenn Víkings voru ánægðir með sitt lið í leiknum gegn …
Stuðningsmenn Víkings voru ánægðir með sitt lið í leiknum gegn ÍR. mbl.is/Haraldur Guðjónsson

Víkingur leikur á meðal bestu liða landsins á næstu leiktíð í handknattleik karla eftir 35:30-sigur liðsins gegn ÍR í úrslitaleik um 2. sætið í 1. deild. Liðið fylgir því FH eftir upp úr næst efstu deild. Leikurinn var mjög jafn og aðeins munaði einu marki á liðunum í hálfleik, 18:17, fyrir Víking. 

Ásbjörn Stefánsson var markahæstur í liði Víkings með 8 mörk, Hreiðar Haraldsson skoraði 7 mörk og Sverrir Hermansson var með 6. Í liði ÍR var Brynjar Valgeir Steinarsson með 7 mörk og Kristinn Björgúlfsson skoraði 6.

Nánar verður fjallað um leikinn á íþróttasíðum Morgunblaðsins á morgun. 

Félagsmerki Víkings.
Félagsmerki Víkings. mbl.is
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert