Ólafur markahæstur í sigurleik

Ólafur Stefánsson.
Ólafur Stefánsson. Guðmundur Rúnar Guðmundsson

Ólafur Stefánsson var markahæstur leikmanna Ciudad Real með 9 mörk þegar liðið lagði BM Antequera, 31:26, á útivelli í spænsku 1. deildinni í handknattleik í kvöld. Tvö marka sinna skoraði Ólafur af vítalínunni.

Ciudad Real er eftir sem áður í þriðja sæti deildarinnar með 16 stig eftir 10 leiki, er tveimur stigum á eftir Barcelona sem náði efsta sætinu í kvöld eftir sigur á Cuenca, 33:20, á útivelli. Reale Ademar var í efsta sæti fyrir leiki  kvöldsins en tapaði stöðu sinni með því að bíða lægri hlut á útivelli fyrir Aragón, 36:32.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert