,,Ætlum að fara alla leið“

Ólafur Guðmundsson hefur leikið gríðarlega vel á HM í Túnis.
Ólafur Guðmundsson hefur leikið gríðarlega vel á HM í Túnis. mbl.is/hag

Íslenska U19 ára landsliðið í handknattleik leikur til úrslita gegn Króötum um heimsmeistaratitilinn á HM 19 ára liða í Túnis annað kvöld eftir magnaðan sigur, 33:31, gegn Túnismönnum í undanúrslitum í gærkvöld. Í hinum leiknum höfðu Króatar betur á móti Svíum, 28:25.

„Þetta var magnað hjá strákunum. Ég hef aldrei á ævinni spilað í jafnmiklum hávaða og stemningu en strákarnir sýndu frábæran karakter. Þeir héldu haus allan tímann, spiluðu sinn leik og uppskáru glæsilegan sigur,“ sagði Einar Guðmundsson, þjálfari íslenska liðsins.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert