Löwen vann Íslendingaslaginn

Guðjón Valur Sigurðsson skoraði mikilvægt mark undir lokin. stækka

Guðjón Valur Sigurðsson skoraði mikilvægt mark undir lokin. mbl.is/Brynjar Gauti

Fimm Íslendingar tóku þátt í viðureign Minden og Rhein-Neckar Löwen í þýsku 1. deildinni í handknattleik í dag og skoruðu allir. Löwen hafði þar betur, 31:27.

Guðjón Valur Sigurðsson skoraði 4 mörk fyrir Löwen, Snorri Steinn Guðjónsson 3 og Ólafur Stefánsson 2. Hjá heimamönnum í Minden var Gylfi Gylfason með 5 mörk og Ingimundur Ingimundarson skoraði tvö.

Staðan var 28:27 þegar hálf þriðja mínúta var eftir af leiknum en þá
skoraði Ólafur og síðan Guðjón í næstu sókn, og úrslitin voru ráðin.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, Handbolti — Fleiri fréttir

Í gær

Laugardaginn 11. febrúar

Föstudaginn 10. febrúar

Fimmtudaginn 9. febrúar

Miðvikudaginn 8. febrúar


finnur.is