Fólskulegt brot Framarans - myndaröð

Jón Karl Björnsson fer innúr horninu og Arnar grípur í fót hans. stækka

Jón Karl Björnsson fer innúr horninu og Arnar grípur í fót hans. mbl.is/Eyjólfur Garðarsson

Arnar Birkir Hálfdánsson, leikmaður Fram, gerði sig sekan um fólskulegt brot í leik liðsins við Gróttu í úrvalsdeild karla, N1-deildinni, á Seltjarnarnesi í gærkvöld. Dómarar leiksins sáu þegar hann beitti svokölluðu „júgóslavnesku bragði" á Jón Karl Björnsson og ráku Arnar réttilega af velli en um stórhættulegt athæfi er að ræða.

Eyjólfur Garðarsson, „hirðljósmyndari" Gróttu, náði magnaðri myndaröð af atvikinu og þær má sjá hér.

Brotið er kennt við Júgóslava því leikmenn landsliðs þeirra beittu því á níunda áratugnum. Það er framkvæmt á lúmskan hátt, gripið í fót hornamanns þegar hann stekkur inní vítateiginn, og erfitt að sjá hvað gerist.

Það var upplýst af árvökulum ljósmyndara dagblaðsins Þjóðviljans, Einari Ólasyni, en hann náði þá myndum í landsleik Íslands og Júgóslavíu  í Laugardalshöll árið 1987 sem vöktu gífurlega athygli víða í handknattleiksheiminum.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Bloggað um fréttina

Loka

Íþróttir, Handbolti — Fleiri fréttir

Í dag

Sunnudaginn 27. maí

Laugardaginn 26. maí

Föstudaginn 25. maí

Fimmtudaginn 24. maí

Miðvikudaginn 23. maí

Þriðjudaginn 22. maí

Sunnudaginn 20. maí

Laugardaginn 19. maí

Föstudaginn 18. maí

Fimmtudaginn 17. maí

Miðvikudaginn 16. maí

Þriðjudaginn 15. maí

Mánudaginn 14. maí

Sunnudaginn 13. maí

Laugardaginn 12. maí


finnur.is