Ragnar samdi við Bad Neustadt

Ragnar Snær Njálsson í búningi Thermaikos. stækka

Ragnar Snær Njálsson í búningi Thermaikos.

Ragnar Snær Njálsson handknattleiksmaður er genginn til liðs við þýska þriðju deildar liðið Bad Neustadt. Hann lék með Thermaikos í efstu deild í Grikklandi fyrir áramótin en fékk samningi sínum rift þar eftir að félagið gat ekki staðið við sitt vegna fjárhagsástæðna.

„Ég valdi þetta þýska lið fram yfir norska úrvalsdeildarliðið Bodö þar sem mér líst mjög vel á framtíðarplönin. Það er nýr þjálfari, ný stjórn, ný höll, nýir leikmenn, og félagið ætlar að komast upp um deild eins fljótt og auðið er. Ég samdi til vorsins en stendur til boða þriggja ára samningur að tímabilinu loknu,“ sagði Ragnar við Morgunblaðið í gær, og reiknaði með að spila fyrsta leikinn strax á laugardaginn.

Ragnar er 23 ára gamall og lék með HK síðustu árin og áður með Akureyri, áður en hann hélt til Grikklands síðasta sumar. vs@mbl.is

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Lesa blaðið hér
Ekki með áskrift?
Skoða áskriftarleiðir
  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, Handbolti — Fleiri fréttir

Í gær

Föstudaginn 10. febrúar

Fimmtudaginn 9. febrúar

Miðvikudaginn 8. febrúar

Þriðjudaginn 7. febrúar


finnur.is