Ásgeir Örn átti stórleik

Ásgeir Örn Hallgrímsson og Ólafur Stefánsson. stækka

Ásgeir Örn Hallgrímsson og Ólafur Stefánsson. Kristinn Ingvarsson

Ásgeir Örn Hallgrímsson, landsliðsmaður í handknattleik, átti stórleik í sínum fyrsta leik með Faaborg HK í næst efstu deild danska handknattleiksins í gær. Faaborg HK kom nokkuð á óvart með því að leggja AG Håndbold, 34:28, á útivelli. Þetta var fyrsta tap AG-liðsins á leiktíðinni en liðið situr áfram í efsta sæti. Faaborg Hk er í þriðja sæti.

Ásgeir Örn mun hafa leikið afar vel jafnt í vörn sem sókn fyrir Faaborg-liðið sem hann gekk til liðs við á fimmtudaginn eftir að GOG varð gjaldþrota á meðan Evrópukeppnin í Austurríki stóð yfir.  Hann skoraði sex mörk og var einu sinni vísað af leikvelli í tvær mínútur.

AG er efst í deildinni með 28 stig að loknum 15 leikjum. Efsta lið deildarinnar í vor fer beint upp í úrvalsdeild. Faaborg er í þriðja sæti með 22 stig en liðin sem enda í öðru til fjórða sæti að lokinni deildakeppninni í vor fara í umspil um sæti í úrvalsdeild.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, Handbolti — Fleiri fréttir

Í dag

Í gær

Laugardaginn 11. febrúar

Föstudaginn 10. febrúar

Fimmtudaginn 9. febrúar

Miðvikudaginn 8. febrúar


finnur.is