Erfitt en vorum með tak á leiknum

Óskar Bjarni Óskarsson, þjálfari Vals, baðar úr höndunum. stækka

Óskar Bjarni Óskarsson, þjálfari Vals, baðar úr höndunum. Árni Sæberg

„Þetta var erfitt hjá okkur en mér fannst við hafa þó tak á leiknum lengst af en vissulega hefði ég viljað sjá mína menn gefa aðeins í ná meira forskoti en raun varð á,“ sagði Óskar Bjarni Óskarsson, þjálfari  Vals, eftir sigur á Stjörnunni, 24:19, í N1-deild karla í handknattleik í Vodafone-höllinni í kvöld. Með sigrinum komst Valur upp í annað sæti deildarinnar en er sem fyrr þremur stigum á eftir Haukum sem tróna á toppnum.

„Við vorum klaufar að gera ekki betur í sókninni. En varnarleikurinn og markvarslan var fín og við fengum aðeins á okkur nítján mörk. Það er mjög gott,“ sagði Óskar sem saknaði Fannars Friðgeirssonar úr Valsliðinu í kvöld. Fannar brákaði rifbein í kappleik við Gróttu í síðustu viku. Þá var Ernir Hrafn Arnarson ekki heldur með vegna bólgu í hné. Baldvin Þorsteinsson hóf leikinn með Val en hann hefur verið lengi frá vegna axlarmeiðsla. Baldvin fann hins vegar fyrir tognun í nára og fór snemma af leikvelli.

Hlynur Morthens, markvörður Vals, varði 20 skot í kvöld, þar af þrjú vítaköst og reyndist Stjörnumönnum óþægur ljár í þufu. „Hlynur hefur verið mjög jafngóður í öllum leikjum okkar í vetur að einun undanskildum og þá var hann veikur af svínaflensu. Hann hefur verið okkar jafnbesti leikmaður í vetur," sagði Óskar Bjarni Óskarsson, þjálfari Vals.

Nánar verður fjallað um viðureign Vals og Stjörnunnar í íþróttablaði Morgunblaðsins í fyrramálið.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, Handbolti — Fleiri fréttir

Í dag

Sunnudaginn 27. maí

Laugardaginn 26. maí

Föstudaginn 25. maí

Fimmtudaginn 24. maí

Miðvikudaginn 23. maí

Þriðjudaginn 22. maí

Sunnudaginn 20. maí

Laugardaginn 19. maí

Föstudaginn 18. maí

Fimmtudaginn 17. maí

Miðvikudaginn 16. maí

Þriðjudaginn 15. maí

Mánudaginn 14. maí

Sunnudaginn 13. maí

Laugardaginn 12. maí


finnur.is