HK lagði Fram með einu marki

Valdimar Fannar Þórsson er í stóru hlutverki hjá HK: stækka

Valdimar Fannar Þórsson er í stóru hlutverki hjá HK: mbl.is/Ómar

HK sigraði Fram, 28:27, í úrvalsdeild karla í handknattleik, N1-deildinni, í Digranesi í kvöld.  HK er þá með 13 stig eftir 10 leiki en Fram er áfram á botninum með 2 stig eftir 11 leiki.

Bjarki Már Gunnarsson skoraði 6 mörk fyrir HK og Sverrir Hermannsson 5, og þá varði Sveinbjörn Pétursson 18 skot. Hjá Fram voru Andri Berg Haraldsson og Einar Rafn Eiðsson með 6 mörk hvor. Magnús Erlendsson varði 14 skot, þar af 11 í fyrri hálfleik.

Fylgst var með gangi mála hér á mbl.is:

60. Leik lokið með sigri HK, 28:27, eftir mikinn endasprett Framara. Þeir gerðu 4 mörk í röð og minnkuðu muninn í eitt mark, 25:24. HK hélt eftir það eins til tveggja marka forskoti út leikinn og Fram minnkaði muninn í 28:27 þegar 13 sekúndur voru eftir. HK hélt boltanum út leiktímann.

54. HK hefur náð mest sex marka forystu og staðan er 25:20. Sigurður Örn Arnarson kom í mark Fram og byrjaði á að verja tvö skot. Síðan braut hann á skotmanni utarlega í teignum og fékk fyrir það brottvísun, sem var framlengd  í 4 mínútur eftir að Sigurður grýtti boltanum í gólfið!

47. HK heldur Frömurum í fjarlægð og staðan er 20:16. Sveinbjörn Pétursson markvörður á þar drjúgan hlut að máli en hann hefur varið níu skot í seinni hálfleik og 16 alls, á meðan Magnús Erlendsson hefur nær ekkert varið í marki Fram í seinni hálfleiknum.

40. Fram jafnaði snemma í seinni hálfleik, 13:13, en HK svaraði því með fjórum mörkum gegn einu og staðan er 17:14.

30. Hálfleikur í Digranesi og staðan 12:10 fyrir HK. þar eru Ragnar Hjaltested og Hákon Bridde með 3 mörk hvor en markaskor Framara dreifist mjög. Magnús Erlendsson í marki Fram hefur varið 11 skot og Sveinbjörn Pétursson hjá HK hefur varið 7 skot. Báðir góðir.

23. HK nýtti sér liðsmuninn þegar Fram missti tvo menn af velli í tvær mínútur og komst í 10:7. Ragnar Hjaltested er kominn með 3 mörk fyrir HK.

17. Mörkum farið að fjölga aðeins í Digranesi og allt í járnum. Staðan 5:5. Guðjón Finnur Drengsson og Hákon Stefánsson með 2 mörk hvor fyrir Fram, Sverrir Hermannsson með 2 fyrir HK.

7. Mikið um mistök á upphafsmínútunum og lítið um mörk. Staðan 1:2.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, Handbolti — Fleiri fréttir

Í gær

Laugardaginn 11. febrúar

Föstudaginn 10. febrúar

Fimmtudaginn 9. febrúar

Miðvikudaginn 8. febrúar


finnur.is