Íslendingaslagur í undanúrslitum

Róbert Gunnarsson átti stórleik í gær þegar Gummersbach skellti Kiel í 8-liða úrslitum þýsku bikarkeppninnar ... stækka

Róbert Gunnarsson átti stórleik í gær þegar Gummersbach skellti Kiel í 8-liða úrslitum þýsku bikarkeppninnar í handknattleik. mbl.is/Kristinn

Róbert Gunnarsson mun mæta samherjum sínum úr íslenska landsliðinu, Guðjóni Val Sigurðssyni, Ólafi Stefánssyni og Snorra Steini Guðjónssyni í undanúrslitum þýsku bikarkeppninnar í handknatteik þegar Gummersbach og Rhein-Neckar Löwen eigast við. Róbert gengur til liðs við Rhein-Neckar Löwen í sumar. Sigurvegari ofangreinds leiks mætir annað hvort HSV Hamburg eða Tus N-Lübbecke, sem Heiðmar Felixson og Þórir Ólafsson leika með, í úrslitaleik sunnudaginn 11.apríl í Color Line íþróttahöllinni í Hamborg. Daginn fara undanúrslitaleikirnir fram á sama stað.

Gummersbach komst í undanúrslit bikarkeppninnar í gær með því að leggja Kiel, 35:28, á heimavelli í Eugen Hass íþróttahúsinu í Gummersbach. Liðin mættust í úrslitum bikarkeppninnar á síðasta ári þar sem Kiel hafði betur. 

Þetta er í fyrsta sinn frá árinu 2003 sem Kiel nær ekki inn í undanúrslit þýsku bikarkeppninnar í handknattleik. 

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, Handbolti — Fleiri fréttir

Í dag

Sunnudaginn 27. maí

Laugardaginn 26. maí

Föstudaginn 25. maí

Fimmtudaginn 24. maí

Miðvikudaginn 23. maí

Þriðjudaginn 22. maí

Sunnudaginn 20. maí

Laugardaginn 19. maí

Föstudaginn 18. maí

Fimmtudaginn 17. maí

Miðvikudaginn 16. maí

Þriðjudaginn 15. maí

Mánudaginn 14. maí

Sunnudaginn 13. maí

Laugardaginn 12. maí


finnur.is