Patrekur: Verðum að nýta færin okkar

Patrekur Jóhannesson, þjálfari Stjörnunnar, ræðir við sína menn. stækka

Patrekur Jóhannesson, þjálfari Stjörnunnar, ræðir við sína menn. Eggert Jóhannesson

„Til þess að vinna leiki þá verðum við að gera meira en að leika góða vörn. Við verðum einnig að nýta hraðaupphlaup sem við fáum í leikjum og fleiri góð færi," sagði Patrekur Jóhannesson, þjálfari Stjörnunnar, eftir fimm marka tap, 24:19, fyrir Val í N1-deild karla í handknattleik í kvöld.

„Það neikvæða hjá okkur er að við nýtum ekki færin okkar en hið jákvæða er varnarleikurinn sem heppnast vel. Það er ekki mörg lið í deildinni sem leika þetta afbrigði sem við erum að spila af fimm plús einn vörn. Einnig er það jákvætt við leik okkar að menn eru að leggja sig fram. Það er mikilvægt þótt ekki gangi allir hlutir upp," segir Patrekur Jóhannesson, þjálfari Stjörnunnar.

Nánar verður fjallað um viðureign Vals og Stjörnunnar í íþróttablaði Morgunblaðsins í fyrramálið. 

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, Handbolti — Fleiri fréttir

Í gær

Laugardaginn 11. febrúar

Föstudaginn 10. febrúar

Fimmtudaginn 9. febrúar

Miðvikudaginn 8. febrúar


finnur.is