Rúnar Sigtryggson: Snerist um að sýna hvað í mönnum býr

Rúnar Sigtryggsson þjálfari Akureyrar. stækka

Rúnar Sigtryggsson þjálfari Akureyrar. mbl.is/hag

mbl.is Eftir Andra Yrkil Valsson, sport@mbl.is

„Ég sagði við strákana fyrir leikinn að nú mundi þetta snúast um hvað býr í mönnum eftir dapran leik í síðustu umferð og þeir sýndu það í þessum leik,“ sagði Rúnar Sigtryggsson, þjálfari Akureyrar, eftir stórsigur sinna manna á Gróttu, 33:19 í N1 deild karla í handknattleik en liðin mættust á Akureyri í kvöld. 

Halldór Ingólfsson hjá Gróttu var að vonum fámáll í leikslok. „Þetta var bara svart og hvítt í þessum leik,við vorum einfaldlega lélegir og engan veginn með hugann við leikinn.”

Gróttumenn voru gjörsamlega kafsigldir í leiknum og ógnuðu aldrei forskoti Akureyringa. Mestur var munurinn sextán mörk í síðari hálfleik og virtust gestirnir vera algjörlega búnir á því. Sigur heimamanna hefði hæglega getað verið stærri, en markverðir Gróttu, þeir Magnús Sigmundsson og Gísli Guðmundsson, komu í veg fyrir frekari niðurlægingu sinna manna, en þeir vörðu samtals rúmlega 20 skot í öllum regnbogans litum.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, Handbolti — Fleiri fréttir

Í gær

Laugardaginn 11. febrúar

Föstudaginn 10. febrúar

Fimmtudaginn 9. febrúar

Miðvikudaginn 8. febrúar


finnur.is