Barrufet hættir eftir sigursælan feril
Spænski handknattleiksmarkvörðurinn David Barrufet hefur ákveðið að hætta að segja skilið við handknattleik í vor og snúa sér að öðrum hugðarefnum. Barrufet er á fertugasta aldursári og hefur verið einn fremsti markvörður Evrópu um langt árabil. Hann hefur verið leikið með Barcelona í 22 ár og unnið með félaginu um 70 titla. Auk þess á Barrufet að baki 280 landsleiki fyrir Spán.
Barrufet tilkynnti ákvörðun sína um að hætta í gær en hann mun leika með Barcelona út þetta keppnistímabil.
Barrufet hefur unnið nánast allt sem hægt er að vinna bæði með Barcelona og spænska landsliðinu. Hann hefur orðið Evrópumeistari með Barcelona sjö sinnum og spænskur meistari í 11 skipti. Heimsmeistari varð Barrufet með landsliði Spánar fyrir fimm árum og þá var hann var í bronsliði Spánverja á síðustu Ólympíuleikum og einnig á Sydneyleikunum fyrir 10 áru. Barrufet var einnig í silfurliði Spánverja á EM 1998 og aftur átta árum síðar.






