Berglind Íris valin best

Berglind Íris Hansdóttir markvörður úr Val. stækka

Berglind Íris Hansdóttir markvörður úr Val. Ómar Óskarsson

Berglind Íris Hansdóttir, markvörður Vals og íslenska landsliðsins, var valin besti leikmaður annars þriðjung N1-deildar kvenna í handknattleik, en tilkynnt var um valið fyrir fáeinum mínútur. Berglind Íris var einnig valinn besti leikmaður fyrsta þriðjungs mótsins. Stefán Arnarson, þjálfari Vals, efsta liðs deildarinnar, var valinn besti þjálfarinn.

Í úrvalsliðið annars þriðjung N1-deildar kvenna eru eftirtaldir leikmenn:

Markvörður: Berglind Íris Hansdóttir, Val
Línumaður: Anna Úrsúla Guðmundsdóttir, Val
Vinstra horn: Ásta Birna Gunnarsdóttir, Fram
Vinstri skytta: Stella Sigurðardóttir, Fram
Miðjumaður: Karen Knútsdóttir, Fram
Hægri skytta: Alina Tamasan, Stjörnunni
Hægra horn: Hanna Guðrún Stefánsdóttir, Haukum
Þjálfari: Stefán Arnarson, Val

Besti leikamður: Berglind Íris Hansdóttir, Val.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, Handbolti — Fleiri fréttir

Í gær

Laugardaginn 11. febrúar

Föstudaginn 10. febrúar

Fimmtudaginn 9. febrúar

Miðvikudaginn 8. febrúar


finnur.is