Hlynur: Skemmtilegra með þessum hætti
„Þetta er bara standardinn hjá manni. Það var ekkert annað í boði. Maður verður bara að standa sig í svona leik,“ sagði Hlynur Morthens markvörður Vals sem varði heil 20 skot í sigrinum á Gróttu í kvöld í undanúrslitum Eimskipsbikarsins í handknattleik.
Valur var að komast í úrslitaleikinn þriðja árið í röð en Hlynur lék úrslitaleikinn í fyrra með Gróttu. Hann hefur haft einkar gaman af því að mæta gömlu félögunum í vetur.
„Það er alveg búið að vera hrikalega gaman að keppa við Gróttu í vetur og við höfum unnið alla þrjá leikina með einu marki. Við náum alltaf góðu forskoti en þeir eru með hörkugott lið og ná alltaf að koma til baka. Þetta er náttúrulega skemmtilegra með þessum hætti, meiri stemning í stúkunni og svona,“ sagði Hlynur hress og hann er ánægður með andstæðingana í úrslitaleiknum.
„Það er bara frábært að fá að mæta Haukum. Þetta er toppleikur og það verður eflaust troðfull höll,“ sagði Hlynur sem ætlar sér að sjálfsögðu að verja jafn vel þá og í kvöld.
„En mér er sama þó ég verji bara þrjá bolta ef við vinnum. Þá verð ég ánægðasti maður í heimi.“






