Valsmenn í bikarúrslitin
Valsmenn unnu í dag Gróttu í seinni undanúrslitaleiknum í Eimskipsbikar karla í handknattleik, 20:19. Þeir mæta því Haukum í úrslitaleiknum. Fylgst var með gangi mála í beinni textalýsingu hér á mbl.is en mikil spenna var á lokamínútum leiksins.
Markverðir liðanna voru í aðalhlutverki í dag og varði Hlynur Morthens 20 skot en Magnús Sigmundsson 17. Markahæstir í liðunum voru Sigurður Eggertsson með 6 mörk hjá Val og Anton Rúnarsson sem gerði 8 mörk fyrir Gróttu.
60. Sanngjarn en naumur sigur Vals í höfn, 20:19. Grótta gerði síðasta mark leiksins þegar 24 sekúndur voru eftir og Valsmenn héldu þá í sókn. Sigurður Eggertsson átti þá skot að marki sem varamarkvörðurinn Gísli Rúnar Guðmundsson varði. Gísli þrumaði boltanum strax fram þó 10 sekúndur væru eftir af leiknum en Elvar Friðriksson komst inn í sendinguna og þar með var björninn unninn fyrir heimamenn.
58. Hynur varði frábærlega skot frá Antoni Rúnarssyni og Valsmenn komust í kjölfarið í tveggja marka forystu, 20:18. Það eru tvær mínútur og 4 sekúndur til leiksloka og farið að fara um Seltirninga sem eru fjölmennir í húsinu.
56. Staðan er 18:17 og aðeins tæpar 5 mínútur eftir af leiknum. Það stefnir í háspennu og dramatík.
50. Eftir að staðan hafði verið 16:11 skoraði Grótta fjögur mörk í röð og minnkaði muninn í eitt mark. Gestirnir fengu svo fjögur tækifæri til að minnka muninn og tókst það loks með vítakasti Jóns Karls Björnssonar. Staðan því 16:16. Valsmenn hafa látið slaka dómara leiksins fara í skapið á sér og tvívegis fengið tveggja mínútna brottvísun fyrir kjaftbrúk. „Kaflaskiptur“ er líklega besta orðið yfir þennan seinni hálfleik.
41. Valsmenn gerðu fjögur mörk í röð og komust í 15:10 eftir tíu mínútna leik í seinni hálfleik. Grótta náði þá loks að minnka muninn með sínu þriðja marki í seinni hálfleik.
30. Hálfleikur. Grótta minnkaði muninn úr 9:5 í 9:8 áður en Valsmenn skoruðu síðasta mark fyrri hálfleiks og staðan því 10:8 í leikhléi. Markahæstir í fyrri hálfleik eru Sigurður Eggertsson og Elvar Friðriksson með þrjú mörk hvor hjá Val en Hjalti Þór Pálmason hefur gert þrjú mörk fyrir Gróttu. Markverðir liðanna, þeir Hlynur Morthens og Magnús Sigmundsson, hafa varið ágætlega eða níu skot hvor.
25. Valsmenn skoruðu fjögur mörk á fjórum mínútum og komust í 8:4 eftir um 23 mínútna leik. Grótta minnkaði muninn í kjölfarið og staðan því 8:5 þegar Grótta tók leikhlé.
18. Sóknarleikur liðanna er aðeins að lagast eftir vægast sagt slakar upphafsmínútur. Gróttumenn skoruðu til að mynda ekki annað mark sitt fyrr en eftir 16 mínútna leik. Valsmenn hafa frumkvæðið en hafa mest náð tveggja marka forystu og er staðan aðeins 4:3.
10. Það tók Valsmenn 9 mínútur og 17 sekúndur að komast á blað í leiknum en þá skoraði Elvar Friðriksson gott mark og jafnaði metin í 1:1. Magnús Sigmundsson hefur varið fjögur skot í marki Gróttu, þar af 1 víti, og nákvæmlega sömu sögu er að segja af Hlyni Morthens hjá Val.
6. Það hefur tekið sinn tíma fyrir liðin að koma sóknarleik sínum í gang en Hjalti Pálmason skoraði fyrsta mark leiksins fyrir Gróttu eftir rúmlega fimm mínútna leik á sínum gamla heimavelli.






