FH hefndi ófaranna gegn Gróttu
Anton Rúnarsson, leikmaður Gróttu, sækir að Sigurgeiri Árna Ægissyni, varnarmanni FH. mbl.is/Kristinn
Grótta og FH áttust við í N1 deild karla í handknattleik og hófst leikurinn klukkan 19:30 íþróttahúsinu á Seltjarnarnesi. FH sigraði 30:27 og hefndi þar með fyrir tapið gegn Gróttu í Hafnarfirði fyrr í vetur. Fylgst var með gangi mála hér á mbl.is.
Markahæstir:
Grótta: Anton Rúnarsson 8/2, Arnar Freyr Theodórsson 5, Heiðar Þór Aðalsteinsson 4.
FH: Bjarni Fritzson 8/2, Ólafur Guðmundsson 6, Bjarki Sigurðsson 4.
60. mín: LEIK LOKIÐ. FH sigraði 30:27 en Gróttu tókst ekki að hleypa spennu í leikinn á lokamínútunum.
54. mín: Staðan er 23:28 fyrir FH og úrslitin virðast. Ekkert bendir til þess að Grótta nái nægilega góðum endaspretti til þess að vinna upp þennan mun.
47. mín: Staðan er 24:20 fyrir FH og Halldór Ingólfsson þjálfari Gróttu tekur leikhlé. Svo sem engin furða því FH-ingar hafa skorað 3 mörk í röð á rúmri mínútu. Staðan var 20:20 og því hafa FH-ingar skorað 4 mörk í röð og eru skyndilega í góðri stöðu.
40. mín: Staðan er 19:19. Hafnfirðingar halda í horfinu í upphafi síðari hálfleiks og náðu tveggja marka forskoti í fyrsta skipti í leiknum 19:17. Seltirningar hafa hins vegar skorað síðustu tvö mörkin. Eins og fyrr segir er allt opið í þessum leik og stemningin er að aukast á Seltjarnarnesinu.
30. mín: Staðan er 14:15 fyrir FH að loknum fyrri hálfleik. Allt útlit fyrir jafnan og spennandi síðari hálfleik ef einhverjar ályktanir er hægt að draga af þeim fyrri. FH hefur spilað betri vörn og fengið aðeins betri markvörslu. Pálmar Pétursson hefur varið 11 skot í marki FH en Gísli Guðmundsson 8 í marki Gróttu. Anton Rúnarsson er markahæstur hjá Gróttu með 5 mörk en Ólafur Guðmundsson hjá FH með 4 mörk.
20. mín: Staðan er 10:8 fyrir Gróttu. Nýliðarnir hafa frumkvæðið eins og er en það gæti verið fljótt að breytast því leikurinn er hraður og leikmenn beggja liða hafa gert fjölda mistaka.
10. mín: Staðan er 5:5. Leikurinn byrjar fjörlega og hraðinn er mikill. Landsliðsmaðurinn Ólafur Guðmundsson hefur þegar skorað 3 mörk fyrir FH.






