46 ára markvörður snéri aftur til HK

Gunnar Magnússon þjálfari HK tefldi fram leynivopni í kvöld. stækka

Gunnar Magnússon þjálfari HK tefldi fram leynivopni í kvöld. hag / Haraldur Guðjónsson

mbl.is Eftir Stefán Stefánsson, ste@mbl.is

Mikið var klappað þegar Magnús Ingi Stefánsson kom inná í mark HK til að freista þess að verja víti gegn Gróttu í Digranesi í kvöld.   Áhorfendur hafa greinilega ágætis minni, muna vel eftir honum þegar hann stóð á milli stanganna hjá HK fyrir tveimur áratugum. 

„HK-menn hringdu í mig og vantaði góðan mann fyrir annan góðan mann.  Ég ræddi eitthvað um samning en það stóð stutt yfir, það þurfti ekki mikið að ganga á eftir mér til að spila fyrir HK, þar sem ég ólst upp.  Ég fór á æfingu í gær og varði margar tuðrur, sumar maður gegn manni en það er nú líklega frekar útaf því að ég var svo seinn að fara frá.

 Þetta var hrikalega gaman að koma hingað til að spila með HK-hjartanu.  Ég er með hundrað prósent mætingu á æfingar, ég verð með í næsta leik, fer að æfa, nú er kviknað í mér og ég vil spila meira í næsta leik," sagði Magnús allhress eins og venjulega en þessi góða mæting er á eina æfingu. 

Markvarðarstaðan var laus því Sveinbjörn Pétursson aðalmarkvörður HK er að taka út tveggja leikja bann, Lárus Helgi Ólafsson tók þá við og Magnús Ingi, 46 ára, var fenginn til vara.  Hann kom þó inná til að reyna verja vítið, sem vítabaninn Jón Karl Björnsson, fyrrum Haukamaður tók.

 „Þegar Jón Karl gekk að vítapunktinum flaug í gegnum hugann á mér „Deja vu“ því það var eins staða uppi fyrir fimmtán árum síðan.  Ég vissi að hann myndi annað hvort reyna að vippa boltanum yfir mig eða snúa honum framhjá mér en hann gerði það ekki, hefur eflaust lært eitthvað á þessum árum,“ bætti Magnús við en hann og Jón Karl voru samherjar hjá Fylki fyrir um þrettán árum síðan.  Magnús náði ekki að verja vítið en gat þó fagnað í 29:24 sigri HK.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, Handbolti — Fleiri fréttir

Í dag

Sunnudaginn 27. maí

Laugardaginn 26. maí

Föstudaginn 25. maí

Fimmtudaginn 24. maí

Miðvikudaginn 23. maí

Þriðjudaginn 22. maí

Sunnudaginn 20. maí

Laugardaginn 19. maí

Föstudaginn 18. maí

Fimmtudaginn 17. maí

Miðvikudaginn 16. maí

Þriðjudaginn 15. maí

Mánudaginn 14. maí

Sunnudaginn 13. maí

Laugardaginn 12. maí


finnur.is