Haraldur: Við munum halda okkur uppi

Haraldur Þorvarðarson. stækka

Haraldur Þorvarðarson. mbl.is/Árni Sæberg

Haraldur Þorvarðarson var markahæstur hjá Fram með 6 mörk þegar liðið lagði Val að velli 26:25 í N1 deild karla í handknattleik í kvöld. Haraldur var afar drjúgur á lokakafla leiksins þegar Frömurum tókst að sigla fram úr. 

„Jú. Í fyrri hálfleik héldum við þeim nánast inni í leiknum. Þeir voru tveimur yfir í hálfleik af því að við leyfðum þeim það,“ sagði Haraldur við mbl.is spurður um hvort það teldist ekki gott að leggja Val þrátt fyrir urmul af mistökum eins og Fram gerði í kvöld. Haraldur er afar bjartsýnn á framhaldið. „Ég tel að við séum komnir með þá taktík sem við þurfum. Við erum lausir við slæma kaflann sem alltaf kom hjá okkur og þess vegna gengur okkur betur að halda út í leikjunum. Eins og sést þá erum við með mannskap til þess að gera góða hluti enda höfum við unnið bæði FH og Val á skömmum tíma. Við erum lausir við slæma kaflann og nú getum við unnið alla,“ sagði Haraldur ennfremur.

„Við eigum eftir að spila við Stjörnuna og Gróttu. Við ætlum að vinna þá leiki og fórum í alla leiki til að vinna héðan í frá. Það er góð tilfinning að geta bjargað okkur sjálfir og þurfa ekki að treysta á aðra. Við erum loksins búnir að endurheimta alla okkar menn úr meiðslum eftir að hafa verið í tómu basli. Við komum gríðarlega vel stemmdir inn í lokabaráttuna og við munum halda okkur uppi,“ bætti Haraldur við.  

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, Handbolti — Fleiri fréttir

Í dag

Sunnudaginn 27. maí

Laugardaginn 26. maí

Föstudaginn 25. maí

Fimmtudaginn 24. maí

Miðvikudaginn 23. maí

Þriðjudaginn 22. maí

Sunnudaginn 20. maí

Laugardaginn 19. maí

Föstudaginn 18. maí

Fimmtudaginn 17. maí

Miðvikudaginn 16. maí

Þriðjudaginn 15. maí

Mánudaginn 14. maí

Sunnudaginn 13. maí

Laugardaginn 12. maí


finnur.is