HK í öðru sæti eftir sigur á Gróttu

Valdimar Fannar Þórsson er í stóru hlutverki hjá HK. stækka

Valdimar Fannar Þórsson er í stóru hlutverki hjá HK. Ómar Óskarsson

HK sigraði Gróttu, 29:24,  í úrvalsdeild karla í handknattleik, N1-deildinni, í Digranesi í kvöld og komst þar með í annað sæti deildarinnar.

HK er með 19 stig en Haukar eru fyrir ofan með 24 stig og Akureyri, sem er með 18 stig, mætir Stjörnunni annað kvöld.

Bjarki Már Elísson skoraði 7 mörk fyrir HK og Valdimar Fannar Þórsson 6. Lárus Helgi Ólafsson lék vel í markinu og varði 18 skot. Hjalti Þór Pálmason skoraði 6 mörk fyrir Gróttu og Jón Karl Björnsson 5.

60. mín. Flautað til leiksloka í Digranesi þar sem HK sigrar örugglega, 29:24. Seltirningar náðu aldrei að ógna því á lokasprettinum.

50. mín. HK heldur forystunni og staðan er 26:21 fyrir Kópavogsliðið. Lárus Helgi Ólafsson hefur varið mark HK af mikilli prýði.

40. mín. Gróttumenn hafa byrjað seinni hálfleik vel og minnkað muninn í 22:18. Þeir hafa líka farið illa með nokkur færi til að laga stöðuna enn frekar.

30. mín. Flautað til hálfleiks í Digranesi og staðan er 18:12 fyrir HK. Ragnar Hjaltested er með 5 mörk fyrir HK og Valdimar Þórsson 4. Sveinbjörn Pétursson markvörður er í banni en Lárus H. Ólafsson fyllir vel í skarð hans og hefur varið 10 skot. Hjá Gróttu er Anton Rúnarsson með 3 mörk.

25. mín. HK er komið með örugga forystu gegn Gróttu, 16:9. Jafnræði var í byrjun, 3:3, en HK breytti síðan stöðunni úr 11:8 í 16:8.

HK er í þriðja sæti deildarinnar með 17 stig eftir 14 umferðir en Grótta er í 6. sætinu með 8 stig.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, Handbolti — Fleiri fréttir

Í dag

Sunnudaginn 27. maí

Laugardaginn 26. maí

Föstudaginn 25. maí

Fimmtudaginn 24. maí

Miðvikudaginn 23. maí

Þriðjudaginn 22. maí

Sunnudaginn 20. maí

Laugardaginn 19. maí

Föstudaginn 18. maí

Fimmtudaginn 17. maí

Miðvikudaginn 16. maí

Þriðjudaginn 15. maí

Mánudaginn 14. maí

Sunnudaginn 13. maí

Laugardaginn 12. maí


finnur.is