Man eftir þessum körlum þegar ég var lítill

Bjarki Már Elísson lék mjög vel með HK í kvöld. stækka

Bjarki Már Elísson lék mjög vel með HK í kvöld. mbl.is/Ómar

„Við lögðum upp með koma tilbúnir til leiks, eins og í síðasta leik gegn Stjörnunni og erum nú komnir í gang eftir áramót," sagði Bjarki Már Elísson úr HK sem fór á kostum í 29:24 sigri á Gróttu í Digranesi í kvöld.

Bjarki sýndi lipra snúninga í horninu, smeygði sér af öryggi í gegnum vörn Gróttu og var snöggur í hraðahlaupin, sem skilaði 5 mörkum. Hann er 19 ára, sem er helmingur af aldri nokkurra leikmanna Gróttu en það verður samt alls ekki af þeim tekið að þeir kunna alveg handbolta.

Bjarki Már flutti sig í Kópavoginn frá Selfossi fyrir þetta tímabil og hefur sett sér markmið - það má mikið vera ef hann hvikar frá þeim.

„Ég man eftir þessu körlum á leikjum í gamla daga þegar maður var lítill og það var gaman að takast á við þá núna. Ég ætla að sjálfsögðu alla leið, stefni á að komast í atvinnumennsku og það verður að byrja einhvers staðar. Ég veit hvað þarf til þess - halda áfram að æfa á fullu og að standa sig inná vellinum, það skiptir öllu máli og eftir því tekur fólkið," sagði Bjarki Már við mbl.is.

Sjá einnig: HK í öðru sæti eftir sigur á Gróttu

Nánar er fjallað um leikinn í íþróttablaði Morgunblaðsins í fyrramálið.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, Handbolti — Fleiri fréttir

Í dag

Í gær

Föstudaginn 10. febrúar

Fimmtudaginn 9. febrúar

Miðvikudaginn 8. febrúar


finnur.is