Nú er ég klár í að fara á fæðingadeildina

Pálmar Pétursson markvörður FH. stækka

Pálmar Pétursson markvörður FH. www.fhingar.is

,,Nú er ég klár í að fara á fæðingadeildina. Konan gerði eins og ég bað hana um. Hún krosslagði fæturna og hélt í sér svo núna er bara rólegheit um helgina og barneignir," sagði Pálmar Pétursson markvörður FH við mbl.is eftir sigur FH gegn Haukum í N1-deildinni í handbolta í kvöld.

Eiginkona Pálmars er ófrísk og gengin nokkra daga fram yfir áætlaðan fæðingartíma og var Pálmar alls ekki viss um hvort hann næði að taka þátt í Hafnarfjarðarslagnum.

,,Þessi leikur þróaðist framan af alveg eins og síðustu tveir leikir á móti Haukunum. Í leikjunum tveimur gáfum við eftir á lokakaflanum enda Haukarnir ólseigir og gefast aldrei upp. En þegar ég leit á klukkuna og við vorum fjórum mörkum yfir þá vissi ég að við myndum hafa þetta. Ég sá glampann í augum á mönnum og það kom ekki til greina annað en að landa sigri,“ sagði Pálmar, sem átti góðan leik á milli stanganna.

,,Það var mikil grimmd í liðinu. Við hirtum flest fráköstin og vissum það að leikurinn myndi vinnast á vörninni sem og hann gerði. Þau voru svo sár töpin þrjú á móti Haukunum og vildum ekki upplifa það aftur. Þetta var rosalega mikilvægur sigur.“

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, Handbolti — Fleiri fréttir

Í dag

Sunnudaginn 27. maí

Laugardaginn 26. maí

Föstudaginn 25. maí

Fimmtudaginn 24. maí

Miðvikudaginn 23. maí

Þriðjudaginn 22. maí

Sunnudaginn 20. maí

Laugardaginn 19. maí

Föstudaginn 18. maí

Fimmtudaginn 17. maí

Miðvikudaginn 16. maí

Þriðjudaginn 15. maí

Mánudaginn 14. maí

Sunnudaginn 13. maí

Laugardaginn 12. maí


finnur.is