Stórsigur hjá Róberti og félögum

Róbert Gunnarsson. stækka

Róbert Gunnarsson. mbl.is/Kristinn

Róbert Gunnarsson og samherjar hans í Gummersbach unnu stóran sigur á Balingen, 35:22, á heimavelli í þýsku 1. deildinni í handknattleik í dag. Róbert skoraði eitt mark í leiknum og var einu sinni vísað af leikvelli. Gummersbach er í sjötta sæti deildarinnar eftir þennan sigur.

Dagur Sigurðsson og lærisveinar hans í Füchse Berlin unnu kærkominn sigur á útivelli á Hannover-Burgdorf, 28:26. Rúnar Kárason skoraði ekki mark að þessu sinni fyrir Berlínarliðið. Hannes Jón Jónsson gerði eitt af mörkum Burgdorf.

Staðan í þýsku 1. deildinni í handknattleik.

Einar Ingi Hrafnsson skoraði fimm mörk fyrir Nordhorn þegar það vann Ahlener SG, 30:27, á útivelli í norðurriðli þýsku 2. deildarinnar. Einar lét mikið til sína taka í vörninni og var þrisvar sinnum vísað af leikvelli í tvær mínútur sem lauk með því að hann sá rauða spjaldið á 54. mínútu. Ólafur Bjarki Ragnarsson hefur ekki jafnað sig eftir að hafa brotið þumlaingur snemma árs. Hann lék því ekki með Ahlener SG að þessu sinni.

Nordhorn er í fjórða sæti riðilsins, sjö stigum á eftir Hamm sem trónir á toppnum. Ahlener SG er fimmta sæti.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, Handbolti — Fleiri fréttir

Í dag

Sunnudaginn 27. maí

Laugardaginn 26. maí

Föstudaginn 25. maí

Fimmtudaginn 24. maí

Miðvikudaginn 23. maí

Þriðjudaginn 22. maí

Sunnudaginn 20. maí

Laugardaginn 19. maí

Föstudaginn 18. maí

Fimmtudaginn 17. maí

Miðvikudaginn 16. maí

Þriðjudaginn 15. maí

Mánudaginn 14. maí

Sunnudaginn 13. maí

Laugardaginn 12. maí


finnur.is