Fram er úr leik

Marthe Sördal, lleikmaður Fram. stækka

Marthe Sördal, lleikmaður Fram. Eggert Jóhannesson

Fram er úr leik í Áskorendakeppni kvenna í handknattleik eftir sex marka tap, 21:15, fyrir HC Metalurg í síðari leik liðanna í Skopje í Makedóníu í dag. Fram vann fyrri leikinn með þriggja marka mun, 29:26. Þar með fer Metalurg áfram í undanúrslit keppninnar með samtals þriggja marka mun, 47:44.

Framliðið lenti strax undir leiknum í dag átti undir högg að sækja allan fyrri hálfleik því leikmenn Metalurg voru tveimur til fjórum mörkum yfir. Marthe Sördal skoraði tvö síðustu mörk fyrri hálfleiks og náði að minnka muninn í tvö mörk fyrir Fram áður en flautað var til loka hálfleiksins, staðan 8:6.

Leikmenn Metalurg náðu fljótlega þriggja til fjögurra marka mun í síðari hálfleik sem þeim tókst að halda allt þar til í lokin að örvæntingarfullar tilraunir Framara til að minnka muninn heppnuðust ekki og Metalurg náði að auk muninn meira. Framliðið virtist eiga möguleika á að minnka muninn en nokkuð af góðum færum s.s. hraðaupphlaupum heppnuðust ekki og góð færi fóru forgörðum sem er dýrt á útivelli í Evrópukeppni.

Mörk Fram: Marthe Sördal 5, Karen Knútsdóttir 4/1, Ásta Birna Gunnarsdóttir 2, Sigurbjörg Jóhannsdóttir 2, Pavla Nevarilova 2.

Íris Björk Símonardóttir stóð sig vel í marki Fram. Hún varði 20 skot, þar af tvö vítaköst.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, Handbolti — Fleiri fréttir

Í dag

Sunnudaginn 27. maí

Laugardaginn 26. maí

Föstudaginn 25. maí

Fimmtudaginn 24. maí

Miðvikudaginn 23. maí

Þriðjudaginn 22. maí

Sunnudaginn 20. maí

Laugardaginn 19. maí

Föstudaginn 18. maí

Fimmtudaginn 17. maí

Miðvikudaginn 16. maí

Þriðjudaginn 15. maí

Mánudaginn 14. maí

Sunnudaginn 13. maí

Laugardaginn 12. maí


finnur.is