Lemgo skellti Kiel

Vignir Svavarsson lék með Lemgo í sigurleiknum á Kiel í dag en samherji hans Logi ... stækka

Vignir Svavarsson lék með Lemgo í sigurleiknum á Kiel í dag en samherji hans Logi Geirsson var ekki í leikmannahópnum. Brynjar Gauti

Lemgo setti strik í reikninginn hjá þýska meistaraliðinu Kiel með því að vinna meistarana, 32:30, á heimavelli sínum í dag. Þar með situr Kiel áfram í öðru sæti deildarinnar þremur stigum á eftir HSV Hamburg en á að vísu einn leik til góða. 

Vignir Svavarsson var í leikmannahópi Lemgo í dag en Logi Geirsson var hinsvegar fjarri góðu gamni. Aron Pálmarsson var heldur ekki í leikmannahópi Kiel að þessu sinni. Lemgo er í sjötta sæti.

Fyrri hálfleikur var jafn en í síðari hálfleik sigldu leikmenn Lemgo framúr og gáfu ekkert eftir. 

Þýski landsliðsmaðurinn Michael Kras var markahæstur hjá Lemgo með sjö mörk. Sebastian Preiss var næstur með sex mörk og þeir Florian Kehrmann og Jens Bechtloff skoruðu fjögur mörk hvor. Kim Andersson skoraði flest mörk fyrir Kiel, níu. Momir Ilic skoraði sex mörk og Christian Sprenger skoraði fimm mörk.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, Handbolti — Fleiri fréttir

Í dag

Sunnudaginn 27. maí

Laugardaginn 26. maí

Föstudaginn 25. maí

Fimmtudaginn 24. maí

Miðvikudaginn 23. maí

Þriðjudaginn 22. maí

Sunnudaginn 20. maí

Laugardaginn 19. maí

Föstudaginn 18. maí

Fimmtudaginn 17. maí

Miðvikudaginn 16. maí

Þriðjudaginn 15. maí

Mánudaginn 14. maí

Sunnudaginn 13. maí

Laugardaginn 12. maí


finnur.is