„Vinnubrögðin Haukum til minnkunar“

Halldór Ingólfsson leikur ekki meira með Gróttu. stækka

Halldór Ingólfsson leikur ekki meira með Gróttu. mbl.is/Ómar

Morgunblaðið Eftir Ívar Benediktsson, iben@mbl.is

„Við töldum okkur ekki eiga annarra kosta völ en að slíta samstarfinu við Halldór þegar í ljós kom að hann hafði samþykkt tilboð Hauka um að taka að sér þjálfun liðs þeirra á næstu leiktíð,“ segir Eiríkur Elís Þorláksson, formaður handknattleiksdeildar Gróttu, um tafarlausa uppsögn Halldórs Ingólfssonar sem þjálfara karlaliðs Gróttu í N1-deild inni á föstudagskvöld.

Eiríkur Elís segir að óánægja Gróttumanna snúi fyrst og síðast að Haukum og þeim vinnubrögðum sem forsvarsmenn deildarinnar temji sér með því að ræða við þjálfara sem eru samningsbundnir öðrum liðum og það nokkru áður en keppnistímabilið er úti. Halldór gerði þriggja ára samning við Gróttu á síðasta vori en í honum var útgönguleið að loknu tímabili á hverju ári.

Nánar er rætt við Eirík um málið í íþróttablaði Morgunblaðsins í dag en þar segir hann m.a. að vinnubrögðin séu Haukum til minnkunar.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Lesa blaðið hér
Ekki með áskrift?
Skoða áskriftarleiðir
  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, Handbolti — Fleiri fréttir

Í dag

Sunnudaginn 27. maí

Laugardaginn 26. maí

Föstudaginn 25. maí

Fimmtudaginn 24. maí

Miðvikudaginn 23. maí

Þriðjudaginn 22. maí

Sunnudaginn 20. maí

Laugardaginn 19. maí

Föstudaginn 18. maí

Fimmtudaginn 17. maí

Miðvikudaginn 16. maí

Þriðjudaginn 15. maí

Mánudaginn 14. maí

Sunnudaginn 13. maí

Laugardaginn 12. maí


finnur.is