Haukar nálgast Stjörnuna

Hanna G. Stefánsdóttirvar einu sinni sem oftar markahæst hjá Haukum í kvöld. stækka

Hanna G. Stefánsdóttirvar einu sinni sem oftar markahæst hjá Haukum í kvöld. hag / Haraldur Guðjónsson

Haukar eru aðeins þremur stigum á Stjörnunnar sem í þriðja sæti úrvalsdeildar kvenna, N1-deildinni, þegar tvær umferðir eru eftir. Haukar unnu í kvöld Víkinga, 36:8, á heimavelli sínum eftir að hafa verið fjórtán mörkum yfir í hálfleik, 17:3.

Haukar eiga þar með möguleika á að ná þriðja sæti deildarinnar á lokasprettinum verði Stjörnunni á í messunni. Bæði lið eiga eftir að mæta KA/Þór í tveimur síðustu umferðum deildarinnar en auk þess á Stjarnan eftir að sækja Fram heim og Haukar að fá FH í heimsókn.

Mörk Hauka: Hanna Guðrún Stefánsdóttir 10, Erna Þráinsdóttir 6, Ester Óskarsdóttir 5, Viktoría Valdimarsdóttir 4, Sandra Sigurjónsdóttir 4, Þórdís Helgadóttir 2, Erla Eiríksdóttir 1, Þórunn Friðriksdóttir 1, Tinna Barkardóttir 1, Karen Helga Sigurjónsdóttir 1, Gunnhildur Pétursdóttir 1.
Varin skot: Bryndís Jónsdóttir 12, Heiða Ingólfsdóttir 6.
Utan vallar: 2 mínútur.
Mörk Víkings: Guðrún Ósk Jónsdóttir 5, Harpa Sif Gísladóttir 1, Guðný Halldórsdóttir 1, María Karlsdóttir 1.
Varin skot: Hugrún Lena Hansdóttir 9.
Utan vallar: 6 mínútur.
Dómarar: Kári Garðarsson og Magnús Jónsson.
Áhorfendur: 142.

Fylkir komst upp í 5. sæti N1-deildar kvenna í kvöld með sigri á HK, 28:24, í Fylkishöll.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, Handbolti — Fleiri fréttir

Í dag

Sunnudaginn 27. maí

Laugardaginn 26. maí

Föstudaginn 25. maí

Fimmtudaginn 24. maí

Miðvikudaginn 23. maí

Þriðjudaginn 22. maí

Sunnudaginn 20. maí

Laugardaginn 19. maí

Föstudaginn 18. maí

Fimmtudaginn 17. maí

Miðvikudaginn 16. maí

Þriðjudaginn 15. maí

Mánudaginn 14. maí

Sunnudaginn 13. maí

Laugardaginn 12. maí


finnur.is