Tuttugasti sigur Vals í höfn

Florentina Stanciu, markvörður Stjörnunnar, er einn burðarásanna liðs Íslandsmeistaranna. stækka

Florentina Stanciu, markvörður Stjörnunnar, er einn burðarásanna liðs Íslandsmeistaranna. hag / Haraldur Guðjónsson

Valur vann tuttugasta sigur sinn í úrvalsdeild kvenna, N1-deildinni, þegar liðið vann Stjörnuna, 27:22, í Mýrinni í kvöld og þarf liðið einn sigur til viðbótar úr tveimur síðustu leikjunum til þess að tryggja sér deildarmeistaratitilinn.

Valsliðið var yfir nær alla leikinn í kvöld ef undan eru skildar fyrstu tíu mínúturnar eða svo. Staðan var jöfn í hálfleik, 11:11, en fljótlega í síðari hálfleik tók Valsliðið öll völd í leiknum og héldu nokkuð þægilegri forystu til leiksloka.

Þorgerður Anna Atladóttir var markhæst hjá Stjörnunni með sex mörk. Alina Tamasan skoraði fimm sinnum og Harpa Sif Eyjólfsdóttir skoraði fjögur mörk.

Florentina Stanciu varði 15 skot í marki Stjörnunnar.

Hrafnhildur Ósk Skúladóttir var markahæst hjá Val með níu mörk. Ágústa Edda Björnsdóttir skoraði sex mörk og Kristín Guðmundsdóttir gerði fjögur mörk.
Berglind Íris Hansdóttir stóð sig vel í marki Vals og varði alls 19 skot.

53. Fátt virðist geta komið í veg fyrir sigur Vals. Liðið hefur fimm marka forskot, 23:18.

45. Stjarnan náði að minnka muninn í eitt mark, 15:14, en í framhaldinu skoraði Valur þrjú mörk án þess að Stjarnan svaraði.  Stjörnuliðið var um stund tveimur færri en hefur nú endurheimt alla sína leikmenn úr skammakróknum. Berglind Íris Hansdóttir hefur varið vel í marki Vals síðustu mínútur.  Staðan 18:14, Val í vil.

34. Valsliðið byrjar síðari hálfleik af miklum krafti og hefur skorað fjögur mörk á upphafsmínútunum gegn aðeins einu marki Stjörnunnar. Staðan 15:12, fyrir Val.

30. Flautað hefur verið til hálfleiks í Mýrinni. Leikmenn Stjörnunnar hafa heldur betur hert upp hugann eftir að Atli þjálfari tók leikhlé á 18. mínútu. Meiri hreyfanleiki hefur verið á sóknarmönnum liðsins auk þess sem þeir eru fljótari að hlaupa í vörn þegar þeir tapa boltanum. Fyrir vikið hefur Valsliðið ekki náð eins mörgum hraðaupphlaupum síðustu tíu mínúturnar og á þeim fyrstu tuttugu. Stjarnan komst yfir 11:10, en Íris Ásta Pétursdóttir jafnaði metin, 11:11, rétt áður en leiktíminn var úti.
Alina Tamasan er markahæstur hjá Stjörnunni með 4 mörk og Þorgerður Anna Atlasdóttir hefur skorað þrisvar sinnum. Hrafnhildur Skúladóttir er markahæst hjá Val með þrjú mörk. Ágústa Edda Björnsdóttir og Kristín Guðmundsdóttir hafa skorað tvö mörk hvor.

18. Valur hefur náð þriggja marka forskoti, 9:6. Atli Hilmarsson, þjálfari Stjörnunnar, tekur leikhlé. Sex af níu mörkum Vals hafa komið upp úr hraðaupphlaupum.

11. Valur hefur skorað þrjú mörk í röð og hefur tekið forystu í fyrsta sinn í leiknum, 6:5. Valsliðið leikur mjög ákveðna framliggjandi 3/2/1 vörn sem  Stjörnunni gengur illa að finna leikið framhjá. Sóknarleikur Vals hefur verið erfiður gegn 6/0 vörn Stjörnunnar. Valsliðið hefur lagt grunn að forystu sinni með mörkum upp úr hraðaupphlaupum.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, Handbolti — Fleiri fréttir

Í dag

Í gær

Föstudaginn 10. febrúar

Fimmtudaginn 9. febrúar

Miðvikudaginn 8. febrúar


finnur.is