Íþróttir
|
Handbolti
| Morgunblaðið
| 17.3.2010
| 7:50
Nielsen staðfestir komu Snorra til AG København
Eftir Ívar Benediktsson, iben@mbl.is
„Það á eftir að hnýta nokkra lausa enda varðandi leikmannahópinn en ég get að minnsta kosti sagt að við bjóðum Snorra Guðjónsson og Thomas Bruhn velkomna til Danmerkur á nýjan leik frá samstarfsfélagi okkar í Þýskalandi, Rhein-Neckar Löwen,“ sagði danski auðmaðurinn Jepser Nielsen í samtali við danska handknattleiksvefinn haandbold.com í gær.
Nielsen staðfesti þar með það sem áður hafði komið fram í þýska dagblaðinu Mannheimer Morgenpost, fyrir skömmu og Morgunblaðið greindi frá í síðustu viku, að Snorri Steinn Guðjónsson flytur sig á ný yfir landamærin til Danmerkur í sumar og gerist leikmaður danska stórliðsins AG København.
Nánar er fjallað um málið í íþróttablaði Morgunblaðsins í dag.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin






