„Ég og Árni erum farnir að drífa á markið“

Heimir Örn Árnason og Bjarni Fritzson eigast við. stækka

Heimir Örn Árnason og Bjarni Fritzson eigast við. mbl.is/Golli

Akureyringurinn Heimir Örn Árnason sagðist í samtali við mbl.is í kvöld vera bjartsýnn fyrir lokasprett Íslandsmótsins. Akureyri er í 2. sæti eftir sigurinn á FH í kvöld og hefur þriggja stiga forskot á næstu lið.„

„Mér finnst við vera mikið sterkari en á fyrri hluta tímabilsins. Það eru fleiri menn að koma sterkir til leiks og ekki skemmir það að ég og Árni Þór erum farnir að drífa á markið. Við erum mjög bjartsýnir, sjálfstraustið er í fínu lagi og við erum í mjög góðum málum fyrir framhaldið,“ sagði Heimir.

Bjarni Fritzson skoraði 12 mörk fyrir FH í leiknum sem missti Akureyringa langt fram úr sér í fyrri hálfleik.  Bjarni var mjög pirraður á leik liðsins í fyrri hálfleik. „Fyrri hálfleikur var algjör skömm af okkar hálfu og það er alveg óþolandi að menn geti ekki spilað almennilega í sextíu mínútur heldur bara smá brot af leiknum. En ég vil minnast á það að dómararnir eiga mikið hrós skilið, þetta var ein besta dómgæsla sem ég hef orðið vitni af og ég man ekki eftir neinu vafaatriði hjá þeim,“ sagði Bjarni en Anton Pálsson og Hlynur Leifsson önnuðust dómgæsluna.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Bloggað um fréttina

Loka

Íþróttir, Handbolti — Fleiri fréttir

Í dag

Sunnudaginn 27. maí

Laugardaginn 26. maí

Föstudaginn 25. maí

Fimmtudaginn 24. maí

Miðvikudaginn 23. maí

Þriðjudaginn 22. maí

Sunnudaginn 20. maí

Laugardaginn 19. maí

Föstudaginn 18. maí

Fimmtudaginn 17. maí

Miðvikudaginn 16. maí

Þriðjudaginn 15. maí

Mánudaginn 14. maí

Sunnudaginn 13. maí

Laugardaginn 12. maí


finnur.is