Góður sigur Fram gegn HK

Haraldur Þorvarðarson er lykilmaður í liði Fram. stækka

Haraldur Þorvarðarson er lykilmaður í liði Fram. Árni Sæberg

HK og Fram áttust við í N1-deild karla í handknattleik í kvöld. Fram hafði betur 25:24 þar sem að Andri Berg Haraldsson skoraði 10 mörk fyrir Fram og Magnús Gunnar Erlendsson markvörður Fram varði 22 skot. Valdimar Fannar Þórsson skoraði 9 mörk fyrir HK. Fylgst var með gangi mála í textalýsingu á mbl.is.

50. mín: Staðan er 21:20 fyrir Fram.

40. mín: Staðan er 16:14 fyrir Fram.

30. mín: Fram er þremur mörkum yfir að loknum fyrri hálfleik, 13:10, er staðan. Leikmenn Fram hafa leikið vörnina af krafti og fengið fjórar tveggja mínútna brottvísanir. Leikmenn HK hafa ekki verið einum færri fram til þessa í leiknum.

20. mín: Botnlið Fram er með yfirhöndina þegar fyrri hálfleikur er rúmlega hálfnaður. Staðan er 9:7 fyrir Fram. 

10. mín: Staðan er 3:3

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, Handbolti — Fleiri fréttir

Í dag

Í gær

Laugardaginn 11. febrúar

Föstudaginn 10. febrúar

Fimmtudaginn 9. febrúar

Miðvikudaginn 8. febrúar


finnur.is