Haukar mörðu sigur á Gróttu
Björgvin Hólmgeirsson tryggðu Haukum eins marks sigur á Gróttu., 24:23, sjö sekúndum fyrir leikslok á Ásvöllum í kvöld í afar spennandi leik. Birkir Ívar Guðmundsson varði vítakasti frá Atla Rúnari Steinþórssyni, fyrirliða Gróttu, þegar 25 sekúndur voru eftir í jafnri stöðu, 23:23.
Síðustu mínútur leiksins voru mjög spennandi. Gótta komst oft yfir í síðari hálfleik og gátu m.a. náð tveggja marka forskoti þegar tvær mínútur voru eftir. Það tókst ekki og Haukar seigluðust áfram og náðu að tryggja sér sigur. Gróttumenn voru skiljanlega vonsviknir að fá ekkert út úr leiknum eftir að hafa risið úr öskustónni í síðari hálfleik eftir afleitan fyrri hálfleik.
Mörk Hauka: Sigurbergur Sveinsson 7/1, Björgvin Hólmgeirsson 5, Elías Már Halldórsson 4, Freyr Brynjarsson 4, Einar Örn Jónsson 2, Pétur Pálsson 2.
Varin skot: Birkir Ívar Guðmundsson 19/2 (þaraf 6 til mótherja).
Mörk Gróttu: Atli Rúnar Steinþórsson 6/1, Viggó Kristjánsson 5, Hjalti Þór Pálmason 4, Jón Karl Björnsson 3/1, Anton Rúnarsson 2, Arnar Freyr Theódórsson 1, Matthías Árni Ingimarsson 1, Ægir Hrafn Jónsson 1.
Varin skot: Gísli Guðmundsson 13 (þaraf 4 til mótherja). Magnús Sigmundsson 4 (þaraf 1 til mótherja).
56. Viggó Kristjánsson var að koma Gróttu yfir, 22:21 en Seltirningar hafa skorað þrjú mörk í röð.
50. Mikil spenna í loftinu á Ásvöllum, staðan er jöfn, 18:18, eftir tvö mörk í röð frá Sigurbergi Sveinssyni.
45. Baráttan skilar Gróttumönnum tveggja marka forystu. Mótlætið fer mjög í sakpið á Haukamönnum.
38. Aron Kristjánsson, þjálfari Hauka, tekur leikhlé. Staðan er 14:13 fyrir Hauka en sóknarleikur þeirra hefur verið í handaskolum það sem af er síðari hálfleiks. Berserksgangur er runninn á Gróttumenn sem virðast heldur betur hafa vaknað til lífsins við hálfleiksræðu þjálfarans.
35. Hver mistökin reka önnur á upphafsmínútum síðari hálfleiks. Grótta hefur skorað tvö fyrstu mörk hálfleiksins og náð að minnka muninn í þrjú mörk, 13:10, fyrir Hauka.
30. Flautað hefur verið til loka fyrri hálfleiks. Haukar eru fimm mörkum yfir, 13:8, er klaufar að vera ekki með stærra forskot. Sóknarleikur Gróttu hefur ekki verið burðugur að þessu sinni.
Sigurbergur Sveinsson er markahæstur Hauka með fjögur mörk. Freyr Brynjarsson og Elías Már Halldórsson hafa skorað þrjú hvor.
Atli Rúnar Steinþórsson er lang markahæstur Gróttumanna með fjögur mörk.
Birkir Ívar Guðmundsson hefur varið 10 skot í marki Hauka og Gísli Guðmundsson níu í marki Gróttu. Hann hefur komið í veg fyrir að munurinn er meiri en fimm mörk á liðunum. Gísli hefur m.a. varið tvö skot úr hraðaupphlaupum.
22. Einstefna á Ásvöllum. Haukar ráða lögum og lofum, staðan er 11:5, þeim í vil. Jón Karl Björnsson hefur brugðist bogalistinn í tveimur vítaköstum gegn sínum gömlu samherjum í Haukum. Fyrsta varði Birkir Ívar Guðmundsson frá honum en síðan skaut Jón Karl í markslána.
17. Geir Sveinsson tekur leikhlé og fer yfir málin með leikmönnum Gróttu en sóknarleikur liðsins hefur ekki verið merkilegur síðustu mínútur, hægur og mistækur. Raunar eiga Haukar einnig í erfiðleikum með að opna vörn Gróttu en þeir hafa lifað í staðinn á hraðaupphlaupum. Fimm af níu mörkum Hauka hafa komið eftir hraðaupphlaup.
10. Mikil barátta er í leikmönnum Gróttu sem ætla greinilega að leggja sig alla í leikinn. Þeir taka vel á í vörninni og hafa síðan verið klókir að finna Atla Rúnar Steinþórsson á línunni, en hann hefur skorað þrjú mörk. Staðan er 6:5, Haukum í vil sem skorað hafa helming marka sinna úr hraðaupphlaupum.
4. Haukar byrja leikinn af krafti og eru 3:1, yfir eftir rúmlega þrjár mínútur.
Geir Sveinsson gengur á milli leikmanna Gróttu og leggur þeim línurnar. Þetta er fyrsti leikur Geir sem þjálfara í úrvalsdeild í nærri sjö ár. Þá var hann við stjórnvölin hjá Val.
Arnar Sigurjónsson og Svavar Pétursson dæmi leikinn á Ásvöllum í kvöld.






