Íþróttir
|
Handbolti
| Morgunblaðið
| 18.3.2010
| 7:44
Heiðmar á leið til Burgdorf á nýjan leik
„Ég komst að samkomulagi við forráðamenn Lübbecke um að slíta samningnum við lok keppnistímabilsins. Ástæðan er fyrst og fremst persónuleg, ekki að mér hafi eitthvað mislíkað við félagið eða stjórnendur þess,“ sagði Heiðmar Felixson, handknattleiksmaður hjá þýska 1. deildarliðinu Lübbecke. Hann komst í gær að samkomulagi við forráðamenn liðsins um að samningi hans við félagið verði rift í vor, ári áður en hann átti að renna út.
Nánar er fjallað um málið í Morgunblaðinu í dag.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin






