Langþráður sigur Valsmanna

Arnór Þór Gunnarsson leikur stórt hlutverk í liði Vals. stækka

Arnór Þór Gunnarsson leikur stórt hlutverk í liði Vals. mbl.is/Ómar

mbl.is Eftir Sindra Sverrisson, sindris@mbl.is

Eftir fjóra deildarleiki og bikarúrslitaleik án sigurs landaði Valur í kvöld langþráðum sigri þegar liðið lagði Stjörnuna að velli, 21:18, í N1-deild karla í handknattleik. Sigurinn var aldrei í raunverulegri hættu en Stjarnan gerði sex af síðustu sjö mörkum leiksins. Fylgst var með gangi mála hér á mbl.is.

Valur er nú með 18 stig í 5. sæti deildarinnar en Stjarnan er í botnbaráttunni með sjö stig.

Vilhjálmur Halldórsson var markahæstur hjá heimamönnum með heil 10 mörk en hjá Val gerði Fannar Þór Friðgeirsson 5 mörk og Elvar Friðriksson 4.

Leik lokið. Sanngjarn og öruggur sigur Vals staðreynd þó Stjarnan hafi reyndar bætt stöðuna talsvert á síðustu mínútunum.

50. Valsmenn eru að sigla öruggum sigri í höfn og hafa nú sjö marka forskot, 18:11. Fannar Þór Friðgeirsson og Elvar Friðriksson eru markahæstir með fjögur mörk hvor. Piltar úr 3. flokkum liðanna hafa fengið að spreyta sig í leiknum, þeir Sveinn Sveinsson hjá Val og Víglundur Þórsson hjá Stjörnunni, en þeir eru eftir því sem næst verður komist aðeins sautján ára.

40. Jafnræði hefur verið með liðunum í seinni hálfleik en fátt bendir til að Stjörnumönnum takist að minnka muninn svo að spenna komist í leikinn, nú þegar staðan er 15:10 gestunum í vil. Roland Eradze virðist þó vera að „hitna“ í markinu og kannski hann geri sínu gamla félagi óleik.

30. Hálfleikur. Valsmenn gerðu fjögur af síðustu fimm mörkum hálfleiksins og breyttu stöðunni í 12:7 sér í vil. Þetta er svekkjandi fyrir heimamenn sem höfðu unnið sig vel inn í leikinn áður en Valur tók leikhlé rúmum fimm mínútum fyrir leikhlé.

Eins og sjá má hafa ekki mörg mörk verið skoruð þó að markverðir liðanna hafi alls ekki átt neinn stórleik. Þetta þarf þó ekki að koma á óvart enda eigast hér við tvö af þeim þremur liðum sem fæst mörk hafa skorað í deildinni í vetur. Markahæstur hjá Val er Elvar Friðriksson með 4 mörk og Vilhjálmur Halldórsson hefur einnig gert 4 mörk fyrir Stjörnuna.

25. Stjarnan gerði tvö mörk í röð og minnkaði muninn enn á ný í tvö mörk, 6:8, og litlu munaði að þriðja markið í röð kæmi. Óskar Bjarni þjálfari Vals ákvað í kjölfarið að taka leikhlé.

20. Vilhjálmur Halldórsson minnkaði muninn í 6:4 með sínu þriðja marki í kvöld og greinilegt að hann er með skotleyfi í kvöld. Valsmenn svöruðu með tveimur mörkum og eftir 20 mínútna leik er staðan 8:4. Það hefur bæst í hóp áhorfenda sem eru sennilega um 100 talsins nú.

13. Stjörnumenn eru allir að koma til, mæta nú Valsmönnum af hörku í vörninni og reyna hraðar sóknir. Valur missti Ingvar Árnason af velli í tvær mínútur og á meðan minnkuðu heimamenn muninn í tvö mörk, 5:3.

5. Leikurinn ber þess öll merki að verða leikur kattarins að músinni. Staðan eftir fimm mínútur er 3:0 Val í vil og Stjarnan hefur aðeins átt eitt skot á mark sem Hlynur Morthens varði auðveldlega.

Samkvæmt nákvæmri talningu mbl.is eru 63 áhorfendur mættir í Mýrina í kvöld, ef með eru taldir gæslumenn. Þetta verður að teljast undarlegt í ljósi mikilvægis leiksins því Valsmenn þurfa nauðsynlega á sigri að halda til að missa ekki efstu lið enn lengra frá sér og Stjarnan á í harðri botnbaráttu.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, Handbolti — Fleiri fréttir

Í dag

Í gær

Laugardaginn 11. febrúar

Föstudaginn 10. febrúar

Fimmtudaginn 9. febrúar

Miðvikudaginn 8. febrúar


finnur.is