„Magnús át færin okkar“
Eftir Stefán Stefánsson, ste@mbl.is„Ég sá margt jákvætt hjá okkur í kvöld því við náðum oft að koma okkur góð skotfæri í mörgum góðum sóknum og getum ekki beðið um mikið meira en að fá þessi færi en Magnús í marki Fram var okkur erfiður, hann gersamlega át okkur í þessum færum og ég get ekki annað en hrósað honum fyrir sína frammistöðu,“ sagði Gunnar Magnússon þjálfari HK eftir 25:24 tap fyrir Fram í Digranesi í kvöld.
„Ég var heldur ekki óánægður með varnarleikinn því Fram var oft í vandræðum með sinn sóknarleik en við réðum ekkert við Andra Berg, auðvitað hefði ég viljað að við verðum eitthvað meira frá honum en hann var sjóðheitur. Leikurinn gat því farið á hvorn veg sem var en dýr mistök urðu okkur að falli í lokin. Nú eru allir leikir sem eftir eru úrslitaleikir og næsti verður það líka svo við verðum að ýta þessum frá okkur og fara að undirbúa fyrir þann næsta. Það er ekkert annað í boði og þýðir ekkert að svekkja sig á þessum í marga daga,“ sagði Gunnar í samtali við mbl.is.






