Óskar: Var farið að taka á sálarlífið

Óskar Bjarni Óskarsson er ætíð virkur á hliðarlínunni á meðan leik stendur. stækka

Óskar Bjarni Óskarsson er ætíð virkur á hliðarlínunni á meðan leik stendur. mbl.is/Árni Sæberg

„Við erum búnir að gera jafntefli við Fram, tapa svo naumlega fyrir HK, Haukum og Fram, og þetta var náttúrulega farið að taka á sálarlífið. Það er þannig hjá öllum liðum svo það var gott að ná í þennan sigur,“ sagði Óskar Bjarni Óskarsson þjálfari Vals eftir fyrsta sigur liðsins í N1-deildinni í fimm leikjum, en sigurinn kom gegn Stjörnunni í kvöld.

Þar með eru Valsmenn aðeins stigi á eftir FH og HK þó enn séu þeir í 5. sæti deildarinnar.

„Þetta voru hagstæð úrslit fyrir okkur í kvöld og það er bara þannig að það geta allir unnið alla í þessu og við verðum bara að hugsa um okkur sjálfa. Vörnin var frábær í dag, nema svona í lokin þegar við gáfum aðeins eftir. Svo vil ég meina að við séum með tvo bestu „sentera“ landsins, Fannar [Þór Friðgeirsson] og Baldvin [Þorsteinsson], og þetta er aðeins farið að rúlla betur hjá okkur. Þegar það kemur betur, og við fáum Sigga [Sigurð Eggertsson] inn sem var ekki með í dag, þá verðum við illviðráðanlegir,“ sagði Óskar og hrósaði Stjörnumönnum fyrir sinn varnarleik.

„Stjarnan leikur bara mjög góða vörn, það er góð hugmyndafræði á bakvið þetta hjá þeim Patreki og Sigga. Við áttum þess vegna í erfiðleikum í sókninni,“ sagði Óskar. Hann vildi sérstaklega hrósa dómurum leiksins, þeim Kára Garðarssyni og Magnúsi Jónssyni, og undir það hrós má sannarlega taka.

„Ég var mjög ánægður með dómgæsluna í þessum leik og það er gaman að sjá hvað þeir standa sig vel. Ég held að allir þjálfarar geti tekið undir það að það færist yfir mann ró þegar maður sér þá koma inn í hús. Mér fannst þeir halda ró sinni allan leikinn og þeir eiga skilið stóran plús.“

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, Handbolti — Fleiri fréttir

Í dag

Í gær

Föstudaginn 10. febrúar

Fimmtudaginn 9. febrúar

Miðvikudaginn 8. febrúar


finnur.is