„Vissi um öryggistaðinn hans“

Magnús Erlendsson markvörður Fram. stækka

Magnús Erlendsson markvörður Fram. mbl.is/Kristinn

mbl.is Eftir Stefán Stefánsson, ste@mbl.is

„Ég vissi hvað hann ætlaði að gera því þetta er öryggistaðurinn hans og  þangað skjóta menn þegar þeir eru undir pressu en ég beið samt eftir skotinu og gaf honum hornið en lokaði því svo“ sagði Magnús Gunnar Erlendsson markvörður Fram sem varði á lokasekúndu leiksins frá Ragnari Hjaltested úr horninu og tryggði Fram 25:24 sigur á HK þegar liðin mættust í Digranesi í kvöld. 

„Við höfum nú unnið þrjá síðustu leiki, reyndar alla með einu marki.   Við höfum verið óheppnir í vetur með meiðsli og leikbönn en nú erum við komnir með kjarnann, sem átti að spila allann veturinn en Daníel og Guðjón hafa að vísu bæst við. Við förum nú batnandi með hverjum leik, sóknarleikurinn er að vísu ennþá dálítið ryðgaður en varnarleikurinn allur að koma.  Það sem vantaði í fyrstu leikina eftir áramót, jafnan leik við Hauka og Val sem við áttum að vinna, var sjálfstraustið og það er nú að koma, við höfum nú spilað þrjá jafna leiki og unnið þá alla, sem er frábært fyrir framhaldið. Menn hafa gefið yfirlýsingu um að við ætlum ekki að falla, erum einfaldlega með alltof gott lið til þess og ætlum að sanna nú í þriðju umferð að við ættum að vera í toppbaráttunni ef þessi mannskapur hefði verið með allt mótið,“ sagði Magnús við mbl.is í kvöld.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, Handbolti — Fleiri fréttir

Í dag

Sunnudaginn 27. maí

Laugardaginn 26. maí

Föstudaginn 25. maí

Fimmtudaginn 24. maí

Miðvikudaginn 23. maí

Þriðjudaginn 22. maí

Sunnudaginn 20. maí

Laugardaginn 19. maí

Föstudaginn 18. maí

Fimmtudaginn 17. maí

Miðvikudaginn 16. maí

Þriðjudaginn 15. maí

Mánudaginn 14. maí

Sunnudaginn 13. maí

Laugardaginn 12. maí


finnur.is