Geir: Grátlegt að fá ekki stig
„Það var skítt að fá ekki stig út úr þessum leik," sagði Geir Sveinsson eftir að hann stýrði Gróttu í fyrsta sinn í N1-deild karla í handknattleik í kvöld og mátti sjá á bak báðum stigunum í hendur Íslandsmeistara Hauka á síðustu sekúndum leiksins, lokatölur 24:23.
Grótta er komið niður í næst neðsta sæti deildarinnar eftir tapið í kvöld því Fram vann HK og er þar með komið upp í sjötta sæti deildarinnar, stigi á undan Gróttu og tveimur stigum á undan Stjörnunni sem rekur nú lestina.
Geir stýrði í kvöld liði í efstu deild karla í handknattleik í fyrsta sinn í sjö ár en þá var hann við stjórnvölin hjá Val.
„Fyrri hálfleikurinn var ekki góður hjá okkur en við fórum vel yfir málin í hálfleik. Spennustigið var vanstillt hjá okkur og við færðum Haukum boltann á silfurfati í nokkur skipti með þeim afleiðingum að Haukar fengu mörg hraðaupphlaup. Menn brugðust vel við því sem við fórum yfir hálfleiknum þannig að úr varð leikur. Þess vegna var sárgrætilegt að fá ekki að minnsta kosti eitt stig út úr leiknum," sagði Geir.
„Hver einasti leikur okkar sem eftir er í deildinni og menn verða búa sig undir það að þeir geti farið á alla vegu. En þrátt fyrir tapið í kvöld þá á leikur okkar í kvöld að sýna strákunum að þeim eru allir vegir færir," sagði Geir sem þykir gaman að vera mættur til leiks á ný sem þjálfari í efstu deild karla. „Hvort eitthvað framhald verður á verður síðan bara að koma í ljós þegar þessari törn lýkur með Gróttu.“






