Hamburg marði Lemgo

Vignir Svavarsson og Ásgeir Örn Hallgrímsson stækka

Vignir Svavarsson og Ásgeir Örn Hallgrímsson mbl.isKristinn Ingvarsson

Hamburg náði í kvöld fimm stiga forskoti á toppi þýsku 1. deildarinnar í handknattleik þegar liðið marði Lemgo, 32:31. Það stefndi í öruggan sigur Hamburg. Liðið var sjö mörkum yfir í hálfleik, 17:10, en Lemgo tókst að jafna metin, 31:31, þegar 15 sekúndur voru eftir. Á lokasekúndunni tryggði svo Martin Lijewski Hamburg sigurinn.

Vignir Svavarsson komst ekki á blað með Lemgo í kvöld en Logi Geirsson var ekki í leikmannahópnum. Báðir yfirgefa þeir liðið eftir tímabilið. 

Hamburg hefur 45 stig í efsta sæti en Kiel, lið Alfreðs Gíslasonar og Arons Kristjánsson er í öðru sæti með 40 stig en á tvo leiki til góða. Lemgo er í sjötta sæti með 30 stig.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, Handbolti — Fleiri fréttir

Í dag

Sunnudaginn 27. maí

Laugardaginn 26. maí

Föstudaginn 25. maí

Fimmtudaginn 24. maí

Miðvikudaginn 23. maí

Þriðjudaginn 22. maí

Sunnudaginn 20. maí

Laugardaginn 19. maí

Föstudaginn 18. maí

Fimmtudaginn 17. maí

Miðvikudaginn 16. maí

Þriðjudaginn 15. maí

Mánudaginn 14. maí

Sunnudaginn 13. maí

Laugardaginn 12. maí


finnur.is