Íþróttir
|
Handbolti
| mbl
| 20.3.2010
| 19:48
Þórir með fjögur í tapleik
Þórir Ólafsson skoraði 4 af mörkum TuS N-Lübbecke þegar liðið tapaði á heimavelli fyrir Göppingen, 34:36, í þýsku 1. deildinni í handknattleik í kvöld. Heiðmar Felixson lék ekki með TuS N-Lübbecke vegna meiðsla.
Gylfi Gylfason skoraði 5 mörk og Ingimundur Ingimundarson 1 fyrir Minden sem tapaði fyrir Balingen, 29:21.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin






